Sameiginleg messa Digranes- og Hjallasafnaða er á Hvítasunnudag, 8. júní klukkan 11 í Digraneskirkju
sr. Magnús Björn Björnsson, prestur í Digraneskirkju leiðir messuna og sr. Halldór Reynisson, settur sóknarprestur í Hjallakirkju prédikar.
Kór Digraneskirkju annast um safnaðarsöng og Sólveig Sigríður Einarsdóttir stjórnar kórnum og leikur á orgelið. Marteinn Snævarr Sigurðsson og Þórhallur Bjarnason syngja einsöng.
Veitingar verða eftir messuna í boði Digranessóknar.
Aðalsafnaðarfundur kl. 13.30. Venjuleg aðalfundastörf.
30. maí 2014 - 15:53
Sr. Gunnar Sigurjónsson