Sunnudaginn 22. mars kl. 11 messar sr. Magnús Björn Björnsson og hljómsveitin Ávextir andans leiða safnaðarsöng. Boðunardagur Maríu kemur með gleðisveip inn í föstuna. Við skiptum úr fjólubláu í hvítan lit gleði og fagnaðar.
Á neðri hæðinni er sunnudagaskólinn í miklu fjöri leiddir af Ingibjörgu, Söru og Áslaugu.
Eftir messu og sunnudagaskóla er upplagt að fá sér léttan hádegisverð í Safnaðarsalnum. Kr. 500 á mann en fjölskyldur greiða hámark kr. 1000.
19. mars 2015 - 12:58
Sr. Magnús Björn Björnsson