Sunnudaginn 22. nóvember kl. 11 verður messa í Digraneskirkju. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar fyrir altari. Sr. Toshiki Toma, prestur Þjóðkirkjunnar meðal innflytjenda, prédikar. Hann mun fjalla um málefni flóttamanna. Barn verður skírt í messunni. Hljómsveitin Ávextir andans leiðir safnaðarsöng.
Á neðri hæðinni verður sunnudagaksóli í umsjá Áslaugar og Söru. Eftir stundina fá börnin að perla.
Eftir messu er hádegisverður í Safnaðarsalnum. Verð kr. 500 á mann, en fjölskylduverð er kr. 1000.
Fermingarfræðsla kl. 12.30. Efni: Fyrirgefningin.
18. nóvember 2015 - 16:20
Sr. Magnús Björn Björnsson