Digranes-og Hjallakirkja taka þátt í vitunarvakningu undir slagorðinu: „Þekktu rauðu ljósin“ í samstarfi við Soroptimistahreyfinguna á Íslandi og önnur félög og stofnanir, hérlendis og erlendis, en átakinu er ætlað að stuðla að útrýmingu ofbeldis gegn konum og rjúfa þögnina varðandi ofbeldi.
Áherslan í ár felst í fræðslu um hvernig koma megi auga á og stöðva ofbeldi í nánum samböndum. Af þessu tilefni munu Digranes-og Hjallakirkja verða upplýstar með appelsínugulum lit á meðan á átakinu stendur, en því lýkur 10. desember á Mannréttindadegi sameinuðu þjóðanna.28. nóvember 2023 - 15:44
Alfreð Örn Finnsson