Vetrarstarfið hefst senn í Digranes- og Hjallakirkju.

Vegna kveðjumessu Biskups Íslands sunnudaginn 25. ágúst messum við kl. 20 í Hjallakirkju. Vegna vígslu nýs Biskups Íslands 1. september messum við kl. 11 í Digraneskirkju. Frá og með 8. september verður messað kl. 11 í Digraneskirkju og kl. 20 í Hjallakirkju.

Íþrótta- og sunnudagaskólinn hefst 1. september.

Fyrsta samveran í Samfélaginu verður þriðjudaginn 3. september.

Barna- og æskulýðsstarfið, Kyrrðarbæn og fleiri fastir liðir hefjast einnig í september og verður auglýst nánar á allra næstu dögum.

20. ágúst 2024 - 14:15

Alfreð Örn Finnsson