Í vetur verður boðið upp á foreldramorgna bæði í Digraneskirkju og Hjallakirkju.
Dagskráin er sem hér segir:
Miðvikudagar í Hjallakirkju kl. 11-11.45
Kaffi, spjall og krílasöngur. Gróa Hreins organisti ásamt prestum og starfsfólki taka vel á móti ykkur.
Fimmtudagar í Digraneskirkju kl. 10-11.30
Fáum fyrirlesara í heimsókn einu sinni í mánuði. Samvera, spjall og góður morgunmatur.
Verið velkomin, það kostar ekkert að vera með.
3. september 2024 - 14:52
Hildur Sigurðardóttir