Dagskrá vikunnar í Samfélaginu:

Við fáum góða gesti í heimsókn sem m.a. leiða helgistundirnar. En Alfreð og Hildur verða í Vatnaskógi á fermingarbarnamóti.

Digraneskirkja þriðjudagur 1. október

Leikfimi í kapellunni kl.11. Hádegisverður kl. 12, kalkúnasnitsel að hætti Stefáns og Lindu. Helgistund kl. 12.30. Sr. Bára Friðriksdóttir og sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson eru gestir okkar að þessu sinni, leiða helgistund og dagskrána. 

Kaffi, molar og spjall.

Hjallakirkja miðvikudagur 2. október

Helgistund kl. 12 í umsjón Gunnars Böðvarssonar og Valgeirs Matthíasar Pálssonar, hádegisverður og spjall. Prjónasamvera kl. 13.

Digraneskirkja fimmtudagur 3. október

Leikfimi í kapellunni kl. 11, léttur hádegisverður og kaffi.

 

30. september 2024 - 12:06

Alfreð Örn Finnsson