Helgihald sunnudaginn 6. október

Digraneskirkja kl. 11

Messa með altarisgöngu þar sem Bræður Móse sjá um tónlistina. Hljómsveitin spilar með og fyrir söfnuðinn, sálma og þekkt dægurlög.

Íþrótta- og sunnudagaskóli kl. 11

Hreyfing, þrautabraut, söngur, bæn og gleði í umsjón Sigríðar Sólar og leiðtoga kirkjunnar.

Súpa og samfélag í safnaðarsal eftir stundirnar!

Hjallakirkja kl. 20

Guðsþjónusta, sönghópurinn 12 í Takt leiðir sönginn undir stjórn Kristjáns Hrannars organista. 

Kaffi, molar og spjall eftir stundina!

3. október 2024 - 14:14

Alfreð Örn Finnsson