Dagskrá vikunnar í Samfélaginu:

Samfélagið er fyrir fólk á öllum aldri, verið velkomin!

Digraneskirkja þriðjudagur 5. nóvember

Leikfimi í kapellunni kl.11. Hádegisverður kl. 12, Stefán og Linda ætla með okkur til Danmerkur að þessu sinni og útbúa Hakkabuff með lauk.

Helgistund kl. 12.30. Gestur dagsins er dr. Guðrún Dóra Bjarnadóttir, geðlæknir. Hún ætlar að spjalla um eldri árin, geðheilsu og mikilvægi hreyfingar.

Kaffi, molar og spjall.

Hjallakirkja miðvikudagur 6. nóvember

Helgistund kl. 12, hádegisverður og spjall. Prjónasamvera kl. 13.

Digraneskirkja fimmtudagur 7. nóvember

Leikfimi í kapellunni kl. 11, helgistund kl. 11.45, léttur hádegisverður og kaffi.

4. nóvember 2024 - 09:58

Alfreð Örn Finnsson