Dagskrá vikunnar í Samfélaginu:
Samfélagið er fyrir fólk á öllum aldri, verið velkomin!
Digraneskirkja þriðjudagur 21. janúar
Leikfimi í kapellunni kl.11.
Hádegisverður kl. 12, Linda og Stefán verða með snitsel með kartöflum og rjómasósu í eftirrétt verður boðið upp á perutertu.
Helgistund kl. 12.30. Eftir helgistund flytur Ragnheiður Kristjánsdóttir erindið Farsæl öldrun.
Ragnheiður er starfsmaður Sjúkratrygginga Íslands.
Kaffi, molar og spjall.
Hjallakirkja miðvikudagur 22. janúar
Bænastund kl. 12, hádegisverður og spjall. Prjónasamvera kl. 13.
Digraneskirkja fimmtudagur 23. janúar
Leikfimi í kapellunni kl. 11, helgistund kl. 11.45, léttur hádegisverður og kaffi.
20. janúar 2025 - 10:11
Alfreð Örn Finnsson