Dagskrá vikunnar í Samfélaginu

Samfélagið er fyrir fólk á öllum aldri, verið velkomin!

Digraneskirkja þriðjudagur 25. febrúar

Leikfimi í kapellunni kl.11.

Hádegisverður kl. 12, fiskréttur að hætti hússins (langa og sætar kartöflur). Helgistund kl. 12.30.

Kaffi, molar og spjall. Prestar og starfsfólk bregða á leik með spurningaleik o.fl.

Hjallakirkja miðvikudagur 26. febrúar

Bænastund kl. 12, hádegisverður og spjall. Prjónasamvera kl. 13.

Digraneskirkja fimmtudagur 27. febrúar

Leikfimi í kapellunni kl. 11, helgistund kl. 11.45, léttur hádegisverður og kaffi.

24. febrúar 2025 - 09:54

Alfreð Örn Finnsson