Dagskrá vikunnar í Samfélaginu

Samfélagið er fyrir fólk á öllum aldri, verið velkomin!

Digraneskirkja þriðjudagur 8. apríl

Leikfimi í kapellunni kl.11. Hádegisverður kl. 12, boðið verður upp á kjúkling og meðlæti.

Helgistund kl. 12.30, eftir helgistund verður boðið upp á kaffi og góða mola.

Við ætlum að hafa heimatilbúin skemmtiatriði, Kristján Hrannar þenur nikkuna, sr. Hildur bregður á

leik og við fræðumst um hetjulega björgun við Látrabjarg og kvikmynd Óskars Gíslasonar.

Hjallakirkja miðvikudagur 9. apríl

Bænastund kl. 12 og Fiskur á föstu.

Eftir bænastundina koma prestar Hafnarfjarðarkirkju í heimsókn.

Fiskmáltíð, kaffi, molar og spjall. Prjónasamvera kl. 13.

Digraneskirkja fimmtudagur 10. apríl

Leikfimi í kapellunni kl. 11, helgistund kl. 11.45, léttur hádegisverður og kaffi.

7. apríl 2025 - 09:10

Alfreð Örn Finnsson