Alla sunnudaga kl. 11 er íþrótta- og sunnudagaskóli í Digraneskirkju. Stundirnar hefjast á léttri upphitun, þrautabraut og leikjum. Síðan heyra börnin sögur af Jesú og læra söngva og bænir sem styðja við trúarlíf þeirra. Áhersla er lögð á virkni barnanna.
Léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar að stund lokinni (ókeypis fyrir börn, 500 kr. fyrir fullorðna).
Staðsetning:
Digraneskirkja (í kapellu og fræðslusal, neðri hæð)
Tímasetning:
Sunnudagar kl. 11:00
Umsjón:
Ásdís Magdalena Þorvaldsdóttir