Útleiga á Digraneskirkju
Kirkjan fylgir tónlistarstefnu Þjóðkirkjunnar.
Digraneskirkja tekur 320 í sæti. Gæta þarf þess að það sem fram fer sé í samræmi við tilgang kirkjunnar. Auk þess má leigja kapelluna á neðri hæð.
Verðskrá:
- Tónleikar: kr. 60.000, þar innifalin er ein æfing sem fram fer í vikunni á undan í samráði við kirkjuvörð.
- Kirkjuvörður: 4.500 kr/klst.
Safnaðarsalur Digraneskirkju
Safnaðarsalurinn er á efri hæð og tekur 140 manns í sæti. Hann er gjarnan leigður fyrir skírnarveislur, brúðkaup og erfidrykkjur.
Reglur um notkun salarins:
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Ef tjón verða á munum kirkjunnar, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
- Safnaðarsalurinn er leigður á kr. 65.000.
- Greiða þarf sérstaklega fyrir laun starfsmanns eða starfsmanna (fer eftir fjölda gesta).
- Greiða þarf fyrir hreinsun á dúkum, ef þeir eru notaðir, kr. 1.200 pr/dúk
- Gæta skal góðrar umgengni í hvívetna
- Ef börn eru meðal gesta, biðjum við um að þau séu ekki eftirlitslaus að leik á göngum og í stiga kirkjunnar!
- Veittur er afsláttur af leigu salarins ef skírnarathöfnin fer fram í kirkjunni.
Kapella og fræðslusalur Digraneskirkju
Kapellan er á neðri hæð og er notuð fyrir helgihald og samverustundir á veturna.
Þar fer fram fermingarfræðslan og barna- og æskulýðsstarf ásamt ýmsum öðrum safnaðarþáttum.
Tengt kapellunni er lítill hliðarsalur sem við köllum fræðslusal. Þetta er hægt að leigja saman eða í sitthvoru lagi.
Kapellan er hentug fyrir ráðstefnur og fundi og tekur uþb. 100 manns í sæti. Þar er skjávarpi og breiðtjald.
Reglur um notkun kapellunnar:
- Reykingar eru stranglega bannaðar.
- Ef tjón verður á munum, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
- Kapellan er leigð á kr. 45.000.
- Greiða þarf sérstaklega fyrir laun starfsmanns eða starfsmanna (fer eftir fjölda gesta).
- Gæta skal góðrar umgengni í hvívetna
- Veittur er afsláttur af leigu salarins ef skírnarathöfnin fer fram í kirkjunni.
- Ef börn eru meðal gesta, biðjum við um að þau séu ekki eftirlitslaus að leik á göngum og í stiga kirkjunnar.
Útleiga á Hjallakirkju
Hægt er að leigja kirkjuna fyrir tónleika. Kostnaður er eftirfarandi:
Tónleikar í kirkju: 50.000 kr
Kirkjuvörður: 4.500 kr/klst
Einnig er rukkað fyrir stefgjald
Innifalið er ein æfing í kirkju.
Kirkjan tekur 230 manns í sæti. Ef opnað er inn í safnaðarsal vegna stórra athafna tekur hún 380 manns í sæti.
Útleiga á safnaðarsal Hjallakirkju
Safnaðarsalur leigist út í samráði við kirkjuvörð.
Kostnaður er eftirfarandi:
Verð fyrir safnaðarsal: 55.000 kr
Minni salur á neðri hæð: 25.000 kr
Báðir salir saman (uppi og niðri): 75.000 kr
Dúkar: 1.200 kr/stk
Starfsmaður: 4.500 kr/klst
Safnaðarsalur tekur um 120 manns í sæti eða yfir 200 standandi. Hægt er að hafa stærri erfidrykkjur sitjandi með því að nýta safnaðarsalina á efri og neðri hæð. Hægt er að leigja salina með dúkum en einnig getur fólk komið sjálft með dúka.